24júní

Húsgagnakaup...pffff!

Fyrr í kvöld fórum við Mark saman í húsgagnabúð.  Hún er hrikalega flott og jafn hrikalega dýr!  Við slefuðum þarna í klukkustund yfir skápum og stólum og borðum og fleira.  Við urðum svo ástfangin af eldhúsborði með háum stólum.  Settið kostar aðeins 900 evrur!!  Við ætlum að athuga hvort það sé möguleiki að fá þetta ódýrara annarsstaðar.  Þetta er samt akkúrat það sem okkur vantar.

Það er bara svo margt á innkaupalistanum og við þurfum að reyna að vera svolítið skynsöm.  Því höfum við ákveðið að fara á uppboð þar sem seld eru allir mögulegir hlutir sem hafa verið teknir af fólki vegna skulda og þess háttar.  Við hljótum að finna eitthvað nothæft þar.  Það verður allavega spennandi að fara þangað og sjá.

Ég vann yfirvinnu í dag.  Bar út í auka hverfi.  Það kom mér mjög á óvart hvað fólk þar hugsaði lítið um garðana sína.  Ég varð að fara í gegnum þvílíku frumskógana.  Ég hef aldrei orðið vör við svona áður því að hollendingar eru svo snyrtilegir yfirleitt.  Kannski hafa þessir ákveðnu nágrannar bara svona neikvæð áhrif á hvorn annan því á öðrum stöðum er þessu öfugt farið og garðarnir eru hver öðrum fallegri. 

24. júní 2006 klukkan 00:25
Beta
Engin athugasemd
22júní

Jæja, nú er hún Magga búin að yfirgefa mig Glottandi.  Hún fór á þriðjudag.  Það var ÆÐISLEGT að hafa hana hér og hún er ávallt velkomin.  Ég held að hún hafi tekið veðrið með sér því að það er búið að rigna síðan hún fór...
Nú erum við Mark að fá íbúðina afhenda í enda næstu viku.  Við erum búin að bíða heila eilífð finnst okkur og það er mikil tilhlökkun. 
Annars er ekkert að frétta í bili.
 
22. júní 2006 klukkan 23:58
Beta
2 athugasemdir
12júní

If at first you don't succeed...


Jæja..nú er heitt í Hollandi.  Yfir 30 gráður í dag! 
Við tókum garðinn í gegn þvi að þetta var hálfgerður frumskógur.  Það er allt annað að sjá garðinn og skemmtilegra að sitja úti.  Allt illgresti farið og búið að þrífa hurðir og lista.  Aaaahhh...Brosandi

Aumingja Jógúrt ætlaði út í dag en fattaði ekki að rennihurðin var lokuð svo að hún stökk beint úr sófanum og á glerið!  Hún gekk um eitthvað ringluð en fór svo aftur uppí sófann og stökk aftur...og sama gerðist.  Það hlýtur að hafa verið sárt, get ekki ímyndað mér annað.  Það hefði verið frábært að ná þessu á video samt ! Hlæjandi

Á morgun kemur Magga í heimsókn!  Ég er svo spennt að fá hana.  Ætla að vakna snemma og taka aðeins til og legg svo af stað útá flugvöll um hádegið.  Ég fæ að eyða heilli viku með henni að versla og skoða Holland.  Hún hefur aldrei komið hingað áður svo að það er margt hægt að gera.  Auðvitað förum við til Amsterdam því að það er skylda.  Ekki af þvi að mér finnist sú borg eitthvað spes, hún er bara svo fræg og allir verða að koma þangað sem á annað borð heimsækja þetta land.  
Svo förum við til Delft sem er uppáhaldsstðurinn minn.  Það er ekkert vesen að fara þangað og auðvelt að fá bílastæði en það getur oft verið mikið mál að ferðast á bíl hér.  Svo er planið að fara á ströndina í Den Haag og kannski djamma þar á laugardag.  Einnig er útimarkaður þar næstu helgi og ég veit að Möggu þætti það gaman.  Annars er þetta bara gróft plan svo að það kemur bara í ljós hvernig þetta verður.

   
12. júní 2006 klukkan 02:49
Beta
1 athugasemd
11júní

World Cup


Nú er líf mitt breytt næstu vikurnar.  Ég er ekki lengur í 1. sæti.  Ég er bara til á milli fótboltaleikja eða ef snakkið er búið...
Um leið og leikur byjar, þá lokast eyrun á honum og augun sjá ekkert nema það sem er á skjánum.  Þetta er hálf fyndið þegar maður er að segja eitthvað og hann heyrir síðasta orðið og reynir svo að semja eitthvað í kringum það orð og vonar að ég fatti ekki neittUllandi

Veðrið hér er alveg frábært!  Við Mark gátum aðeins unnið í garðinum í dag og kisurnar böðuðu sig í sólskininu.  Það er búið að spá auknum hita næstu daga og Magga kemur á mánudag í heimsókn.  Hún lendir í 30 gráðum svo að það er eins gott að koma með sólarvörn.  Hún vill ekki líta út eins og humar í útskriftinni sinni Glottandi

Jæja, ég ætla að láta þetta duga núna og fara í háttinn. 

11. júní 2006 klukkan 02:52
Beta
Engin athugasemd
10júní

Verð að byrja einhversstaðar...


Ég hafði oft velt því fyrir mér hvort að ég ætti að fá mér bloggsíðu.  Komst svo að þeirri niðurstöðu að það væri bara vitleysa.  Hvað er fólk að röfla á netinu og hver nennir að lesa það??

Ég skipti svo um skoðun þegar ég flutti út.  Það getur verið þægilegt fyrir vini og fjölskyldu að lesa það sem ég skrifa hér því að ég er ekki þekkt fyrir að vera dugleg að hafa samband.

Ég ætla samt ekki að lofa reglulegum skýrslum.  Bara skrifa þegar ég nenni og hef tíma.  

Það væri gaman ef fólk skrifaði í gestabókina og skildi eftir athugasemdir af og til svo  ég viti hver er að lesa.  Takk!
   
10. júní 2006 klukkan 02:01
Beta
1 athugasemd

Aðalvalmynd

Tenglar

Auglýsing

Klukkan

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...