Gott veður framundan

Jæja, það er ekkert mikið að frétta.  Kötturinn að jafna sig eftir sólbruna á eyrum og sýkingu í augum.  Ég er því búin að kaupa sólarvörn fyrir hana sem ég get bara sprautað á eyrun og ennið þar sem hún er viðkvæm.  Hún fattar nefnilega ekki að liggja í skugga og elskar sólina.Cool

Nú á að vera mjög heitt næstu vikuna (25 stig).  Ég á því örugglega eftir að vera mikið í garðinum.  Ég ætla að bera á pallinn, það þarf að gera það árlega.  Við þrifum hann fyrir meira en viku með háþrýstidælu en höfum ekki getað borið á hann enn vegna þess að það hættir til að rigna á kvöldin.  Nú á hinsvegar að vera þurrt næstu daga svo að bráðum verður pallurinn eins og nýr.

Nú er búið að klára pöntunina fyrir nýja baðherbergið.  Við breyttum flísunum sem við vorum upprunalega búin að panta en hættum við þær á síðustu stundu eftir miklar vangaveltur.  Þær voru brúnar og hvítar en við ákváðum að fá frekar gráar og hvítar þar sem eldhúsið og klósettið niðri er í þeim litum.  Til að hafa þetta allt í stíl skoWink

Við fórum í byggingarmarkaðinn í dag(þrisvar sinnum) og keyptum m.a. gólflista á ganginn. Ég er búin að saga þá og setja þá á gólfið en á bara eftir að gera það leiðinlegasta...bora þá fasta.  Kannski fæ ég kallinn til að gera það baraLaughing
En allavega...við keyptum rósir af tveimur strákum sem voru að selja fyrir utan verslunina.  Þetta er í annað skiptið sem ég kaupi af þeim(líka í síðustu viku).  Það er stundum gaman að hafa blóm í vasa til að horfa á. 

Nú ætla ég að fara í bólið og lesa blað um heimilið sem ég keypti í dag.  Kannski fæ ég einhverjar hugmyndir.

Góða nótt 
20. júní 2009 klukkan 21:43
Beta

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Tenglar

Auglýsing

Klukkan

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...