Ísland
Jæja, komin heim frá Íslandi. Ferðin heim gekk vel. Ég kom með þvílík ósköp af sælgæti heim, mörg kíló og ég ætla að njóta þess að borða þetta á næstu vikum.
Ég átti góða daga á klakanum. Ferðin austur á Höfn var skemmtileg og það var líka mjög gaman að hitta allar vinkonurnar og fólk sem ég hef ekki séð lengi. Það var alveg glatað að ég skildi svo verða veik í 2 daga eftir að hafa borðað samlokuna á ónefndum stað á suðurlandi;o)
Ég verslaði svolítið en ekkert of mikið, aðallega föt og skemmtilega muni sem munu mynna mig á þessa ferð það sem eftir er.
Ég ætla að reyna að koma árlega framvegis. Það er of langt að láta 2 eða 3 ár líða á milli heimsókna. Þá er svo mikil hætta á að maður missi samband við fólk.
Sem betur fer er fólk duglegt að heimsækja mig svo að ég fæ að hitta fólk á milli Íslandsferða.
19. maí 2009 klukkan 20:54
Beta
Beta