Kisa til dýralaeknis
Ég fór med Jógúrt til dýra á mánudag. Hún er farin ad hnerra svo hrikalega mikid aftur og eftir ad hún pissadi á sig í einu hnerrakastinu, pantadi ég tíma til ad láta kíkja á hana.
Sýklalyf hafa ekki virkad nógu vel hingad til. Laeknirinn tók thví sýni úr nefinu á henni sem verdur svo sent til raektunar. Í naestu viku fae ég svo ad vita hvad kom útúr thví. Ef ad thad er baktería sem their thekkja, geta their gefid henni rétt sýklalyf sem vinnur thá betur heldur en hin og thessi lyf sem búid er ad prófa.
Hinsvegar gaeti thetta líka verid vírus og thá er lítid haegt ad gera. Laeknirinn vill thá setja hana á vikukúr med sýklalyf í aed og thad kostar heilan helling og er heldur ekki skemmtilegt fyrir kisu. Og thad versta vid thad er ad thad er enganveginn víst hvort thad myndi laekna hana!
Thetta var án vafa ein sú versta ferd til dýralaeknis sem Jógúrt hefur upplifad. Fyrst var maeli trodid í bossann hennar. Hún var med 38.4 sem er edlilegt. Sýnid var svo tekid med thví ad stinga bómullarpinna langt uppí nefid og hún hrokk vid og thad byrjadi ad fossblaeda og svo hnerradi hún alveg hrikalega og blódsletturnar flugu um herbergid. Thá kom laeknirinn med deyfilyf í lítilli flosku med mjóum stút og sprautadi tvhí líka í nefid og thá byjadi hún ad slefa thessi óskop og laeknirinn sagdi ad thetta vaeri vegna thess ad lyfid er aetlad fólki og sé thví bara fáanlegt med bananabragdi! Greyid kotturinn sat tharna á bordinu í einum keng og vissi ekki hvad vaeri ad gerast. Hún var thví fegin thegar búrid var opnad og hljóp inní thad. Svo thurftum vid ad bída í 10 mín og athuga hvort thad myndi ekki orugglega haetta ad blaeda. Svo borgadi ég 'litlar' 82 evrur og fór heim.
Beta
ég hélt samt að hún hefði verið "PYNTUÐ" en Guði sé lof að það var "bara" dýri.