Gleđileg Jól
Nú erum við komin heim frá Danmörku. Við vorum hjá mömmu í nokkra daga og það var alveg yndislegt eins og alltaf.
Við komum á mánudeginum (22.des) og mamma sótti okkur á flugvöllinn. Um kvöldið fórum við svo í BILKA súpermarkað og keyptum jólamatinn. Þar var svo bara ákveðið að borða pitsu áður en haldið var heim.
Á þriðjudag fórum við til Vejle að versla í nýju verslanamiðstöðinni. Við áttum enn eftir að kaupa jólagjafir og þegar það var búið settumst við niður á kaffihúsi.
Við tókum svo nokkrar myndir að leigu fyrir jóladagana því að það var ekkert í sjónvarpinu sem varið var í.
Svo eyddum við bara restinni af dvölinni með því að láta fara vel með okkur og borða góðan mat. Á aðfangadagskvöld var t.d. hangikjöt og jóladag var svo lambalæri frá Chile. Það var með því besta sem ég hef smakkað og alls ekki síðra en það íslenska. Því miður gat Juriaan ekki borðar mikið því hann fékk flensu og er enn lasinn
En ég lofaði að tala um þennan jólamarkað sem við fórum á um daginn. Það var nú ekki svo merkilegt. Við fórum á bílnum og eftir mikla leit, fundum við markaðinn. Það var frost úti og þarna voru nokkrir básar. Þetta var því miður ekki innandyra og þar sem ég var að ná mér af flensu, þá hlupum við eiginlega bara í gegnum markaðinn og fórum svo bara aftur í bílinn. Það var mikið af fallegum munum þarna en þvi miður voru þetta dýrir hlutir og mest fyrir heimilið, t.d. lampar, vasar og borðbúnaður.
Þarna var líka verið að selja veitingar og lítill kór var að syngja. Hins vegar fannst mér bara of kalt til að njóta þess að sitja úti svo að við fengum okkur ekkert. Kannski er ég bara svona mikil kuldaskræfa en ég vil frekar fara á innimarkaði á veturna.
Á heimleiðinni fórum við svo í bíltúr í gegnum lítil þorp og keyrðum um sveitavegi. Það gerum við stundum og það fannst mér skemmtilegra en markaðurinn.
Það er ekkert meira að frétta í bili. Nú er ég bara að njóta helgarinnar og fer svo að vinna á morgun.
Beta