Flensa

Ég er lasin.  Þetta er í fyrsta skipi í mörg ár því að ég fæ bara aldrei flensu....næstum aldrei. Kannski er það þessvegna sem ég er lengi að ná mér núna.  Að líkaminn minn viti ekki hvað hann á að gera.  Ég er nefnilega búin að vera frá vinnu síðan á föstudag í síðustu viku.  Ég var orðin veik á fimmtudeginum en það var svo lítið af fólki í vinnunni að ég gat ekki farið heim, fannst mér. 
Í dag er fyrsti dagurinn sem ég er ekki rúmliggjandi.  Ég er samt svo máttlaus eitthvað og full af slími og ég hósta og snýti mér vinstri hægri.  Pfff, ég er orðin frekar leið á þessu.

Juriaan er frábær og stjanar við mig. Það er því búið að hugsa mjög vel um mig og ég er svo sannarlega heppin með hannLaughing.  
11. desember 2008 klukkan 14:16
Beta

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Tenglar

Auglýsing

Klukkan

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...