Jæja, það er ekkert mikið að frétta. Kötturinn að jafna sig eftir sólbruna á eyrum og sýkingu í augum. Ég er því búin að kaupa sólarvörn fyrir hana sem ég get bara sprautað á eyrun og ennið þar sem hún er viðkvæm. Hún fattar nefnilega ekki að liggja í skugga og elskar sólina.
Nú á að vera mjög heitt næstu vikuna (25 stig). Ég á því örugglega eftir að vera mikið í garðinum. Ég ætla að bera á pallinn, það þarf að gera það árlega. Við þrifum hann fyrir meira en viku með háþrýstidælu en höfum ekki getað borið á hann enn vegna þess að það hættir til að rigna á kvöldin. Nú á hinsvegar að vera þurrt næstu daga svo að bráðum verður pallurinn eins og nýr.
Nú er búið að klára pöntunina fyrir nýja baðherbergið. Við breyttum flísunum sem við vorum upprunalega búin að panta en hættum við þær á síðustu stundu eftir miklar vangaveltur. Þær voru brúnar og hvítar en við ákváðum að fá frekar gráar og hvítar þar sem eldhúsið og klósettið niðri er í þeim litum. Til að hafa þetta allt í stíl sko
Við fórum í byggingarmarkaðinn í dag(þrisvar sinnum) og keyptum m.a. gólflista á ganginn. Ég er búin að saga þá og setja þá á gólfið en á bara eftir að gera það leiðinlegasta...bora þá fasta. Kannski fæ ég kallinn til að gera það bara En allavega...við keyptum rósir af tveimur strákum sem voru að selja fyrir utan verslunina. Þetta er í annað skiptið sem ég kaupi af þeim(líka í síðustu viku). Það er stundum gaman að hafa blóm í vasa til að horfa á.
Nú ætla ég að fara í bólið og lesa blað um heimilið sem ég keypti í dag. Kannski fæ ég einhverjar hugmyndir.
Jæja, komin heim frá Íslandi. Ferðin heim gekk vel. Ég kom með þvílík ósköp af sælgæti heim, mörg kíló og ég ætla að njóta þess að borða þetta á næstu vikum. Ég átti góða daga á klakanum. Ferðin austur á Höfn var skemmtileg og það var líka mjög gaman að hitta allar vinkonurnar og fólk sem ég hef ekki séð lengi. Það var alveg glatað að ég skildi svo verða veik í 2 daga eftir að hafa borðað samlokuna á ónefndum stað á suðurlandi;o) Ég verslaði svolítið en ekkert of mikið, aðallega föt og skemmtilega muni sem munu mynna mig á þessa ferð það sem eftir er.
Ég ætla að reyna að koma árlega framvegis. Það er of langt að láta 2 eða 3 ár líða á milli heimsókna. Þá er svo mikil hætta á að maður missi samband við fólk.
Sem betur fer er fólk duglegt að heimsækja mig svo að ég fæ að hitta fólk á milli Íslandsferða.
Ég fann thennan texta á annarri bloggsídu og komst í svo gott skap ad ég vard ad setja hann hér inn. Ef einhvern langar ad panta pítsu á frumlegan hátt, thá eru hér nokkrar hugmyndir.
Ef þú ert með tónvals-síma, þá skaltu ýta af og til á takkana. Biddu síðan manneskjuna sem er að taka við pöntuninni um að hætta þessu.
Notaðu "ýkt" mikið slangur þegar þú pantar pizzuna. ("Meikaðu eina þokkalega feita slæsu með plenty tjís á kantinum ..")
Segðu þeim að senda pizzuna, og spurðu hvort að sendillinn geti komið við á Macdonalds fyrir þig og tekið einn "Big Mac" með fyrir þig í leiðinni.
Ljúktu símtalinu með því að segja: "Mundu .. að við áttum aldrei þetta samtal."
Segðu þeim sem að tekur pöntunina að samkeppnisaðilinn sé á hinni línunni og þú ætlir að taka besta boðinu.
Svaraðu þeirra spurningum með spurningum.
Með mjög blásandi röddu .. segðu þeim að þér sé skítsama um alla næringu og heilsufæði .. þú viljir bara eitthvað hrrrrikalega fitandi.
Segðu þeim að þú viljir hafa skorpuna ofaná í þetta skiptið.
Syngdu pöntunina við eitthvað gott Metallica lag.
Ekki segja hvað þú viljir á pizzuna - heldur skaltu stafa það.
Talaðu mjög smámælt þegar þú segir "sósa" og "ostur" .
Stamaðu á öllum "p" orðum.
Ef þú hringir í Pizza 67 skaltu spyrja hvort viðkomandi viti hvaða tilboð Hrói Höttur er með .... (og öfugt).
Spurðu viðkomandi hvernig hann sé klæddur.
Láttu braka í puttunum á þér þegar þú talar (nálægt símtólinu)
Segðu "halló" ... síðan skaltu þykjast vera undrandi og soldið ruglaður í svona fimm sekúndur .. og láttu síðan líta út fyrir að þau hafi hringt í þig.
Bunaðu út úr þér pöntununni. Ef þau spyrja hvort þú viljir gos með þessu, þá skaltu "panikera" og verða utan við þig.
Búðu til lista yfir mjög framandi álegg. Pantaðu þau sem álegg.
Skiptu um hreim á þriggja sekúndna fresti.
Pantaðu 52 pepperoni sneiðar og láttu raða þeim í blómamynstur á pizzuna.
Láttu sem þú þekkir viðkomandi: "Bíddu ... vorum við ekki saman í Vatnaskógi?"
Byrjaðu pöntunina á því að segja "Ééééég æææætla að fáááá ............" bíddu í smástund, sláðu þig þá í framan og segðu "NEI .. ég ætla ekki að fá það"
Reyndu að leigja þér pizzu.
Spurðu hvort þú megir eiga pizza kassann. Þegar þau segja "já" skaltu þykjast verða rosalega feginn.
Settu ákveðna áherslu á endann á öllum orðum. T.d. "i" í pepperoni .... (Prófaðu ....)
Þegar þú ert spurður hvernig þú viljir pizzuna .. segðu þá "Shaken .. not stirred".
Færðu tólið alltaf lengra og lengra frá eftir því sem líður á samtalið. Í lok símtalsins skaltu færa það snöggt til baka og öskra "BLESSSSS ......." af öllum lífs og sálarkröftum.
Biddu þau um að dobbel tékka á því hvort pizzan sé ekki örugglega dauð þegar hún kemur úr ofninum.
Hermdu eftir röddinni á þeim sem tekur við pöntuninni.
Útilokaðu öll sagnorð þegar þú pantar.
Þegar þú ert spurður "Hvað viltu?" Segðu þá ... "Ehh .. ertu að meina núna .... eða á pizzuna?"
Spilaðu country tónlist á bakvið og talaðu með mjög ýktum western hreim.
Skemmtu þeim sem að tekur við pöntuninni með lítt þekktum staðreyndum úr Country-tónlistar heiminum.
Talaðu stjórnmálalega, og biddu um uppreiknað verð pizzunnar með tilliti til flatra ríkisbundinna vaxta.
Pantaðu sneið .. ekki heila pizzu.
Farðu að hrjóta örlítið í miðri pöntun ... síðan skaltu hrökkva við og segja "Hvar var ég .... hver ert þú?"
Sálgreindu þann sem tekur við pöntuninni.
Pantaðu einhver tvö álegg .. segðu síðan "Nei .. bíddu aðeins .. þau lenda alltaf í slag."
Hringdu og kvartaðu undan þjónustunni. Hringdu 5 mínútum síðar og afsakaðu þig með því að þú hafir verið fullur og ekki meint neitt með þessu.
Notaðu upphrópanir eins og: "Jeremías minn einasti .. " og "Hjálpi mér allir heilagir .."
Biddu um þann sem tók pöntunina þína síðast afþví að "hann skilur mig".
Hugsaðu upphátt um hluti einsog "Þvílík nasahár .. ég ætti að gera eitthvað í þessu".
Spurðu hvort að þetta sé lífrænt ræktuð pizza.
Fáðu upplýsingar um viðhalds og varahlutaþjónustu við pizzuna.
Ef þú ert með tónvalssíma ... ýttu þá á 9-1-1 á 5 sekúndna fresti.
Byrjaðu samtalið á því að segja dagsetninguna og tímann og segðu síðan "Þetta er líklega síðasta pöntunin mín ........"
Pantaðu .. og segðu síðan að þetta samband ykkar komi ekki til með að ná lengra en þetta.
Segðu "Ksssssssssssssssssssssht" frekar hátt í símann ... og síðan "Wowwww .... fannstu fyrir þessu".
Lærðu að spila blús riff á munnhörpu .. stoppaðu reglulega til að spila riffið.
Spurðu hvort að viðkomandi vilji smakka pizzuna þína .. og hvort þú megir smakka uppáhaldstegundina hans.
Hermdu eftir Davíð Oddssyni og segðu að þú viljir ekki að einhver "pizzu-krakka-bólu-fésa-auli fokki upp pöntunninni".
Settu þau á "hold"
Byrjaðu á því að panta sveppi ... í lokin skaltu segja "Og alls enga sveppi". Skelltu á áður en þú færð viðbrögð.
Þegar þau segja verðið, skaltu segja "Whooo ... þetta hljómar alltof flókið .. ég kann ekkert í stærðfræði".
Prúttaðu.
Biddu um tveggja tommu pizzu.
Meðan þú pantar ... skaltu fara í mútur .. skipta oft um rödd .. og verða vandræðalegur.
Láttu mynd með góðu bílaeltingar atriði rúlla í vídeóinu og stilttu hljóðið frekar hátt. Þegar skotið er úr byssu skaltu öskra "ÁÁÁ !!"
Biddu um gufusoðna pizzu.
Ef eitthvað af undanförnu er hafnað af pizza staðnum, segðu þá væminni röddu "Þeir á hinum pizza staðnum leyfa mér alltaf að gera þetta."
Jógúrt er með vírus svo að það verður ekki auðvelt að lækna hana. Mér voru gefnir tveir möguleikar. Dýralæknirinn hafði áður talað um vikumeðferð þar sem hún þarf að vera með í æð. En nú stakk hann líka uppá öðrum möguleika sem er ekki eins dýr og auðveldari fyrir kisu. Það er nálastungumeðferð og þá þyrfti hún að koma 4-5 sinnum í stutta meðhöndlun. Ég ætla að prófa það og vona bara að það hjálpi.
Ég fór med Jógúrt til dýra á mánudag. Hún er farin ad hnerra svo hrikalega mikid aftur og eftir ad hún pissadi á sig í einu hnerrakastinu, pantadi ég tíma til ad láta kíkja á hana.
Sýklalyf hafa ekki virkad nógu vel hingad til. Laeknirinn tók thví sýni úr nefinu á henni sem verdur svo sent til raektunar. Í naestu viku fae ég svo ad vita hvad kom útúr thví. Ef ad thad er baktería sem their thekkja, geta their gefid henni rétt sýklalyf sem vinnur thá betur heldur en hin og thessi lyf sem búid er ad prófa.
Hinsvegar gaeti thetta líka verid vírus og thá er lítid haegt ad gera. Laeknirinn vill thá setja hana á vikukúr med sýklalyf í aed og thad kostar heilan helling og er heldur ekki skemmtilegt fyrir kisu. Og thad versta vid thad er ad thad er enganveginn víst hvort thad myndi laekna hana!
Thetta var án vafa ein sú versta ferd til dýralaeknis sem Jógúrt hefur upplifad. Fyrst var maeli trodid í bossann hennar. Hún var med 38.4 sem er edlilegt. Sýnid var svo tekid med thví ad stinga bómullarpinna langt uppí nefid og hún hrokk vid og thad byrjadi ad fossblaeda og svo hnerradi hún alveg hrikalega og blódsletturnar flugu um herbergid. Thá kom laeknirinn med deyfilyf í lítilli flosku med mjóum stút og sprautadi tvhí líka í nefid og thá byjadi hún ad slefa thessi óskop og laeknirinn sagdi ad thetta vaeri vegna thess ad lyfid er aetlad fólki og sé thví bara fáanlegt med bananabragdi! Greyid kotturinn sat tharna á bordinu í einum keng og vissi ekki hvad vaeri ad gerast. Hún var thví fegin thegar búrid var opnad og hljóp inní thad. Svo thurftum vid ad bída í 10 mín og athuga hvort thad myndi ekki orugglega haetta ad blaeda. Svo borgadi ég 'litlar' 82 evrur og fór heim.
Oj hvad thad er oft erfitt ad komast fram úr rúminu á morgnana! Thad tekur mig heila eilífd stundum og ég rek thá Juriaan fyrst í sturtu til ad fá adeins meiri tíma til ad kúra undir saeng. Í dag var einmitt svoleidis dagur.
Thad er byrjad ad hlýna adeins og birta til og vid fórum í gaer í gardaverslun og keyptum pottaplontur í gardinn og svo keyptum vid líka.....sólhlíf. Ekki thad ad vid getum notad hana en hún var á gódu verdi og vid féllum fyrir henni. Hún á eftir ad koma ad gódum notum í sumar. Bara ad thad komi nú fljótlega.
Tengdó átti afmaeli á laugardag og vid fórum í veislu. Mér finnst samt hollendingar ekki kunna almennilega á thetta. Their eru alltaf med tertur en gera ekki eins og á Íslandi. Ég er von ad heyra: Gjorid svo vel! og svo hefst kapphlaupid ad ná í allt thad besta ádur en thad er búid og svo getur madur farid fleiri ferdir og nád í meira. Frábaert alveg! En hérna...Kannski 2-3 tegundir og svo eru allir spurdir hvada tegund their vilja og theim gefinn diskur med einni lítilli sneid og svo faerdu ekki meira. Ég er yfirleitt svong thegar ég kem úr bodum hér. Ég taladi um thetta áhyggjuefni mitt vid samstarfskonu mína sem er frá Ungverjalandi og hún er alveg sammála og segir ad thetta sé eitthvad hollenskt thví ad hún er ekki alin upp vid svona og hún kannast einmitt vid hladbordaveislur frá hennar landi.
Nú er vinnudagurinn ad verda búinn. Vid forum beint í búdina og thad verdur tómatsúpa og braud med brieosti í kvoldmatinn.
Já, thad er gaman ad segja frá thví ad í morgun gekk ég í fyrsta skiptid í vinnunna án thess ad thad vaeri myrkur. Nei ég svaf ekki yfir mig, thad var bara allt í einu komin birta úti!
Ég er núna í vinnunni. Vid Juriaan tókum okkur frí í gaer. Vid thurftum nefnilega ad ganga frá skattaskýrslunni og nú erum vid í sambúd og eigum hús og vorum ekki viss um hvernig thetta aetti ad vera allt saman. Thess vegna bádum vid um adstod og í gaermorgun gat starfsmadur fra einhverju bókhaldsfyrirtaeki komid og hjálpad okkur. Thad var nú ekki ókeypis en vel thess virdi. Nú er thetta bara búid og vid getum andad léttar.
Thar sem vid vorum nú í fríi og í studi til ad gera eitthvad skemmtilegt, fórum vid í lunch á hóteli hér nálaegt. Thar kjommsudum vid á Club samloku og svo fengum vid okkur kappótjínó á eftir. Svo fórum vid í verslun sem selur hurdir og thar gátum vid eytt gódum tíma í ad skoda milljón tegundir og fá hugmyndir fyrir húsid okkar. Okkur langar í nýjar hurdir inni og kannksi líka útidyrahurd. Thad er bara svo dýrt ad kannksi er bara betra ad láta gera hana upp og setja betri lása á hana. Mér finnst hún nefnilega ekki ljót. Ég hef bara áhyggjur af thví ad hún sé ekki nógu orugg. En svo endudum vid daginn í verslanamidstod í Amsterdam og vid keyptum spegil á klósettid nidri og dósaopnara thví ad okkar hrokk í sundur um daginn. Svo vorum vid adalega ad safna hugmyndum og svoleidis thví ad thetta voru bara verslanir fyrir heimilid. Fundum veggfódur fyrir ganginn t.d.
En ég verd ad haetta núna og fara ad vinna fyrir kaupinu mínu.
Nú erum við komin heim frá Danmörku. Við vorum hjá mömmu í nokkra daga og það var alveg yndislegt eins og alltaf. Við komum á mánudeginum (22.des) og mamma sótti okkur á flugvöllinn. Um kvöldið fórum við svo í BILKA súpermarkað og keyptum jólamatinn. Þar var svo bara ákveðið að borða pitsu áður en haldið var heim.
Á þriðjudag fórum við til Vejle að versla í nýju verslanamiðstöðinni. Við áttum enn eftir að kaupa jólagjafir og þegar það var búið settumst við niður á kaffihúsi. Við tókum svo nokkrar myndir að leigu fyrir jóladagana því að það var ekkert í sjónvarpinu sem varið var í. Svo eyddum við bara restinni af dvölinni með því að láta fara vel með okkur og borða góðan mat. Á aðfangadagskvöld var t.d. hangikjöt og jóladag var svo lambalæri frá Chile. Það var með því besta sem ég hef smakkað og alls ekki síðra en það íslenska. Því miður gat Juriaan ekki borðar mikið því hann fékk flensu og er enn lasinn
En ég lofaði að tala um þennan jólamarkað sem við fórum á um daginn. Það var nú ekki svo merkilegt. Við fórum á bílnum og eftir mikla leit, fundum við markaðinn. Það var frost úti og þarna voru nokkrir básar. Þetta var því miður ekki innandyra og þar sem ég var að ná mér af flensu, þá hlupum við eiginlega bara í gegnum markaðinn og fórum svo bara aftur í bílinn. Það var mikið af fallegum munum þarna en þvi miður voru þetta dýrir hlutir og mest fyrir heimilið, t.d. lampar, vasar og borðbúnaður. Þarna var líka verið að selja veitingar og lítill kór var að syngja. Hins vegar fannst mér bara of kalt til að njóta þess að sitja úti svo að við fengum okkur ekkert. Kannski er ég bara svona mikil kuldaskræfa en ég vil frekar fara á innimarkaði á veturna.
Á heimleiðinni fórum við svo í bíltúr í gegnum lítil þorp og keyrðum um sveitavegi. Það gerum við stundum og það fannst mér skemmtilegra en markaðurinn.
Það er ekkert meira að frétta í bili. Nú er ég bara að njóta helgarinnar og fer svo að vinna á morgun.
Ég er í vinnunni núna. Mér lídur betur en samt ekki alveg ordin gód. Ég hósta mikid ennthá. Thessi vika er thví midur kvoldvaktavikan mín og mér finnst svo hrikalegt ad hafa ekki getad maett. Stelpurnar í mínum hópi hafa thví verid bara tvaer alla vikuna og sem betur fer kom ég í kvold thví ad thad er mikid ad gera. Kerfid var bilad í allan dag og nú erum vid ad vinna upp thad sem hefur thurft ad liggja sídan um klukkan níu í morgun. Og vid erum bara thrjár. En okkur leidist ekki á medan
Á morgun erum vid Juriaan búin ad plana ad fara á jólamarkad. Segi frá honum naest.
Ég er lasin. Þetta er í fyrsta skipi í mörg ár því að ég fæ bara aldrei flensu....næstum aldrei. Kannski er það þessvegna sem ég er lengi að ná mér núna. Að líkaminn minn viti ekki hvað hann á að gera. Ég er nefnilega búin að vera frá vinnu síðan á föstudag í síðustu viku. Ég var orðin veik á fimmtudeginum en það var svo lítið af fólki í vinnunni að ég gat ekki farið heim, fannst mér. Í dag er fyrsti dagurinn sem ég er ekki rúmliggjandi. Ég er samt svo máttlaus eitthvað og full af slími og ég hósta og snýti mér vinstri hægri. Pfff, ég er orðin frekar leið á þessu.
Juriaan er frábær og stjanar við mig. Það er því búið að hugsa mjög vel um mig og ég er svo sannarlega heppin með hann.